Heilsuræktin – meðhöndlun:
heilsunudd – líkamsþjálfun og ráðgjöf –
hjóna og para ráðgjöf/handleiðsla
Heilsuræktin er hugsuð sem regnhlíf fyrir hvers kyns heilsurækt,andlega og líkamlega. Ráðgjöf einkaþjálfara vegna líkamsræktar. Heilsunudd sem innifelur meðhöndlun með beitingu ólíkra aðferða. Þar má nefna klassískt nudd, svæðanudd, heildrænt nudd, íþróttanudd, kinesology, triggerpunktameðferð, sogæðanudd og ilmolíufæði.
Klínískur handleiðari og ráðgjafi býður upp á hjóna- og pararáðgjöf þar sem unnið er með samskipti para og þau aðstoðuð við að bæta samband sitt.

Heilsan þín er okkar mál
Það skiptir okkur miklu máli að þjónusta skjólstæðinga okkar faglega. Trúnaður og vönduð vinnubrögð skipta miklu máli.
Líkamsrækt og ráðgjöf
Heilsuræktin býður upp á æfinga áætlanir sérsniðnar að markmiðum þínum í líkamsrækt. Þú sendir okkur óskir þínar og við bregðumst við með tilboði og tillögum.
Bókun og upplýsingar: Heilsuræktin@heilsuraektin.is
Heilsunudd
Meðhöndlun með heilsunuddi býður upp á mikla möguleika við hvers kyns kvillum. er yfirgripsmikið því það nær yfir margar og mismunandi aðferðir. Fjölbreytileikinn sem aðferðin vinnur með er mikill kostur. Heilsunuddarar eru með ólíkar áherslur við meðhöndlun. Í öllum tilfellum er unnið út frá þörfum og óskum skjólstæðinga. Misjafnt er hvað hentar hverjum og einum.
Nudd hefur mjög góð og jákvæð áhrif á vöðva líkamans. Nuddið mýkir vefi og vöðva. Vinnur með hreyfigetu líkamans og hefur jákvæð áhrif á líkamsstarfsemi eins og losun úrgangsefna, blóðflæði og súrefnisflæði. Nudd getur hjálpað fólki að ná slökun og losar um streitu.
Heilsunudd er kærkomin viðbót við aðra heilsurækt, orðið hluti af lífsstíl.
Heilsunudds meðhöndlun Heilsuræktarinnar er í höndum Brynju Guðmundsdóttur ÍAK þjálfara og heilsunuddara.
Tímapöntun: brynja@heilsuraektin.is
Hjóna og para handleiðsla/ráðgjöf
Para- og hjóna ráðgjöf/handleiðsla Heilsuræktarinnar hefur það að markmiði að aðstoða fólk við að bæta samskipti sín og samband við maka.
Í handleiðslu/ráðgjöf eru nýttar gagnreyndar aðferðir til að vinna að lausnum og og aðstoða pör við að bæta samskipti sín á milli.
Samskipti eru gjarnan upphaf vandamála sem leiða til ágreinings og skorts á nánd.
Samskipti, nánd, ágreiningur, kynlíf, uppeldi.
Meðhöndlari er sr. Fritz Már Jörgensson prestur, ráðgjafi og klínískur handleiðari.
Tímapöntun:
Heilsuræktin@heilsuraektin.is
Berum ábyrgð á eigin heilsu
Það er hverri manneskju falið að bera ábyrgð á eigin heilsu. Leitum aðstoðar fagfólks þegar á þarf að halda.
Sjálfsvinna
- Líkamsrækt með fagaðila
- Heilsunudd með fagaðila
- Para- hjónaráðgjöf með fagaðila


Hver erum við
- Brynja Guðmundsdóttir ÍAK einkaþjálfari og heilsunuddari.
- Sr. Fritz Már Jörgensson prestur, ráðgjafi og klínískur handleiðari. BA, Mag,theol, MA.
Við erum hér fyrir þig
Við svörum tölvupóstum varðandi tímabókanir og upplýsingar alltaf samdægurs..